Er hægt að drukkna í snjó?Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Sælt veri fólkið. 

Í dag fékk ég svakalega góðar fregnir: ég er komin með vinnu í sumar og í pásafríinu, ég verð að vinna á tilraunastofu í Radiumhospitalet sem er tilraunastofa sem vinnur með dýr sem eru með krabbamein og á stofunni er verið að reyna finna leið til að "lækna" krabbamein.  Radiumhospitalet er krabbameins sjúkrahús og er stærsta krabbameins"miðstöð" á Norður-Evrópu.  Ég mun vinna virka daga frá 8-15.  Ég sótti um þessa vinnu í gærkvöldi og fékk að vita að ég gæti byrjað á morgun ef ég vildi, hitti svona líka vel á þetta!

Síðasta föstudag voru stjórnarskipti í skólanum og núna er ég orðin innkaupastjóri, og já það hljómar ekkert skemmtilegt en þegar félagið á 9.000.000kr ís inná reiking verður þetta SVAKALEGA GAMAN!  Eftir aðalfundinn var farið útað borða á svakalega fínan veitingarstað og svo var partý eftirá. Ég stakk af eftir smá göngu í miðbænum og fór og hitta Kidda og íslendinganna sem voru saman komnir hjá Hildi.  Þar var fólk í fullum gír að spila gítarhero.  Þetta kvöld var ég í kjól sem ég hef átt í 2-3 ár og ALDREI notað, en ákvað að nota hann loksins núna en var samt ekkert að fíla mig í honum.  Hildur byrjar sem sagt að hrósa kjólnum mínum eins og fleiri þetta kvöld og ég segist bara hreinlega ekki fíla hann og hún spurði mig hvor hún mætti ekki kaupa hann?  Já sagði ég og vitið menn, ÉG FÓR ÚR KJÓLNUM OG SELDI HANN Á STAÐNUM!  Ég labbaði svo heim með Kidda á sokkabuxunum og kápunni.  Við Kiddi hlógum mikið þegar við vorum labbandi á leiðinni heim!

Alli bróðir komí heimsókn í febrúar og var það ótrúlega gaman og gott að sjá hann!  Hann kom með heila ferðatösku af mat og nammi - fra mömmu, Systu frænku og Eddu tengdó - ÞÚSUND ÞAKKIR FYRIR OKKUR!!! Ég sýndi Alla Ósló í einum stórum göngutúr, veit ekki hvort sumir voru sátti rmeð að labba allt, en hann fékkekkert að ráða.  Um kvöldið kom svo Gísli Sveinn frændi, ótrúlega langt síðan ég hafði séð hann en eins og ég bjóst við þá leið mér eins og ég hefði séð hann dagin áður - við fórum á djammið, var frekar rólegt djamm samt.  Daginn eftir fórum við á bílnum sem við vorum bín að fá lánaðan til Norefjell sem er svakalega flott skíðasvæði um einn og hálfan tíma fyrir utan Osló.  Þetta var ótrúlega skemmtilegt ferð og við vorum í svakaleg flottum bústað/höll sem var á þremur hæðum með 3 arna/gufubaði og ALLES!  Seinnidaginn vorum við orðin svakalega klár á skíðum og fórum á stökkbrettin og allt!  
Gísli fór svo á sunnudagskvöldinu og Alli bró á mánudagsmorgni, við áttum frábæra helgi og vona ég að við endurtökum þetta að ári!!!

Ég er búin að vinna núna tvær helgar á tilraunastofunni uppí skóla(fyrir þá sem eru eitthvað "forvirra" er ég að vinna núna á tvemur stofum: einni uppí skóla(dýralæknaskólinn) og einni í Radiumhospital(vinna sem ég fékk í dag)) og ég fékk laun í dag og ég skal bara segja ykkur það að ég hef ALDREI fengið svona há laun!  

Eurovision verður spennandi þetta árið, það er strákur sem keppir fyrir Noreg og hann hefur með sér 3 dansara og ég þekki einn dansarann - gaman að því!  Alveg furðulegt í margra milljóna samfélagi!  Svo maður getur ekki annað en haldið svoldið með Noregi þetta árið.  

Síðustu viku vorum við Kiddi að passa tvo æðisslegar kisur og það er alveg ótrúlega hvað gæludýr inná heimili gefur manni mikið!  Á morgun fæ ég svo hund sem ég á að passa í eina viku svo ég er öll í þessu!  

Það er alltaf brjálað að gera hjá Kidda í skólanum og eins í vinnunni. Núna um daginn var hann beðin um af kennaranum hvort hann mætti ekki nota úrlausnir hans á verkefni - þetta kalla ég gott þegar hann er að vinna 70% vinnu og í 200% skóla!  Elska þessa elsku... ;0)

Hérna er allt á kafi í snjó en það er farið að hlýna svo það er svakalega mikið af aðvörunarskyltum útúm allt: TakRas(þakhrap) þar sem við höfum um meters löng grýlukerti sem bara bíða eftir að lenda á hausnum á manni frá svona 10 metra hæð!  Þessi grýlukerti eru svona álíka breið og handleggurinn minn svo maðu þarf ekkert að ræða hvað gerist ef maður fær svona í hausinn, svo það þýðir lítið annað en að ganga á götunum þegar það er svona að hlýna.  Þetta er eitthvað sem maður þarf ekki að spá i heima, helst vegna þess að maður gengur voða lítið heima og hvað þá svona nálægt háum húsum með hallandi þökum.  

Í dag bara til miðnættis er svo verið að auglýsa flug til Osló með Icelandair á 9900 önnur leið með sköttum svo ef þið ætlið að kíkja á okkur er núna tíminn til að kaupa miða!

Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra núna


Þar til næst
Bergþóra 

Loks blogg frá Noregi.Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Margt búin að gerast síðan síðast og LENGI síðan síðast.  Ég hef ákveðið að blogga hérna aðeins…þó svo að maður sé nú búin að koma flestum ættingjum á Facebook til að maður þurfi ekki að blogga meira. 
 

Stuttu eftir að ég bloggaði síðast fór ég í sjónvarpsviðtal hjá TV2 hérna úti, á God Morgen Norge – sem er eins og Ísland í bítið var þáttur.  Við Thelma fórum saman eldsnemma um morguninn til að ræða um kreppuna á Íslandi – góð byrjun á deginum! 
Gat séð sjónvarpsviðtalið hérna, þaft að finna dagsettningu 28.okt 2008 í God morgen Norge.  
http://webtv.tv2.no/webtv/?treeId=16&progId=siste&itemId=&displayTreeId=&showArchive=false&referrer=TV2.no 
 

Ég var líka tekin í einhver útvarpsviðtöl hjá norska ríkisútvarpinu en það er ekkert spennandi og hef ég ekki getað fundið þau viðtöl á netinu. 
 

Við erum bæði komin með vinnu!  Kiddi er að vinna eins og brjálæðingur með skólanum sínum í Zöru hérna úti og er að þéna svakalega vel þar!  Ég fékk vinnu á tilraunastofunni uppí skóla, ótrúlega þakklát fyrir að hafa fengið þá vinnu.  Ég er bara vinna max eina helgi í mánuði, og þá er ég að vinna gjörsamlega ein: eða alla veganna eina manneskjan ;0).  Ég mæti átta og gef þá dýrunum að borða, athuga hitastig í öllum herbergjum og kælum, skipti um vatn svo þegar það er búið, þetta tekur um 2 tíma þá er ég í pásu til svona þrjú og gef þá grísunum og athuga hvort öll dýr séu í góðu lagi og fer svo heim um hálf fjögur!  Ég vinn tæpa 3 tíma og fæ borgað fyrir 7,5!  Í pásunni minn má ég gera hvað sem er, fara í bæinn, bankann, læra, horfa á tv...alveg sama!  En þau á tilraunarstofunni er mjög þakklát ef ég gef mér tíma til að kosa med dyrene litt(knúsa aðeins dýrin), þá helst rotturnar og kanínurnar.  Rottur eru algjörar dúllur, ég vissi ekki að þær væru svona rólegar og þær bíta ekki ef maður fer rétt að þeim.  En þetta var bara um vinnurnar okkar. 
 

Desember var bara læra læra læra!  Svo tók ég 9 tíma prófið mitt sem var hreint helvíti en gekk nú samt vel!  Fyrir utan siggið sem maður fékk á rassin eftir að sitja svona lengi og heilacellumissinn!  Ég pissaði 3 sinnum og borðaði eina samloku á meðan á þessu stóð, ég nýtti allan tíman sem ég fékk og þegar tíminn var búin vorum við tvær eftir og byrjaði hin að hágráta greyið...enda svakalegt taugaspenna í gangi þarna.  En þetta er búið og þarf ég aldrei að taka svona langt próf aftur...lengsta próf núna gæti verið á bilinu 7-8 tímar kannski, sem ég á eftir. 
 

Við vorum heima um jólin og höfðum það náðugt hjá fjölskyldu og vinum.  Þetta var frekar stutt frí, fyrir mig að minnsta kosti, og hefði ég viljað vera svoldið lengur. 
 

Núna í janúar áttum við skötuhjúin bæði afmæli, 18.jan(BH) og 23.jan(KJÓ) fyrir þá sem ekki vita, svo erum við auk þess búin að vera saman í 4 ár – og still going strong ;0)
 

Á afmælisdeginum mínum bauð ég 15 manns í kökuboð og var mín búin að baka 4 kökur og vöfflur með.  Þetta var voðalega notalegt kvöld, en þessir Norsarar borða svo lítið að það var næstum allt eftir svo við höfðum annað kökukvöld daginn eftir með Íslensku vinunum og þá var borðað munnnnn betur, svo fengu þau köku með í nesti. 
 

Ég fékk BESTU AFMÆLISGJÖF í heimi sem hægt er að hugsa sér: mamma HÆTTI AÐ REYKJA og er ekki búin að taka einn smók síðan þá og núna í dag eru 2 vikur.  Tek það fram að mamma reykir langt yfir einn pakka á dag og hefur gert síðan hún var smá barn!!!  TIL HAMINGJU MAMMA MÍN – ÞYKIR OFSALEGA VÆNT UM ÞIG OG ER SVAKALEGA STOLLT AF ÞÉR! 
 

Afmælisdagurinn hans Kidda er og verður eflaust eftirminnilegasti afmælisdagurinn hans lengi.  Þannig er mál með vextir að Helgi Þór og Matti komu suprise í heimsókn og þetta var ekkert venjulegt suprise.  Helgi og Matti komu um hádegi til Osló og þá fór Helgi beint í vinnuviðtal(kauði ætlar sér að flytja hingað út og sitjum við Kiddi hér með krossna fingur hvert kvöld um að hann fái nú gott atvinnutilboð) og Matti fór með mér í leiðangur.  Ég var nefnilega búin að skipuleggja ratleik fyrir Kidda, sem var að vinna til 3 þennan dag. 
 

Ratleikurinn var svona: Kiddi kemur heim úr vinnunni og sér miða sem liggur á borðinu, þar stendur góðan daginn ástin mín, kveiktu nú á videovélinni og lestu áfram....pakkaðu sundskýlu, hlýjum fötum og linsunum þínum...þú hefur 5 mín og farðu svo að næsta miða sem er undir koddanum...undir koddanum var miðið sem á stóð: taktu nú allt dótið og farðu í Bunpris(matvöruverslun) og keyptu 2 hvítlauksbrauð...vertu snöggur því þú færð bónus fyrir að vera snöggur.  Kiddi fer í bunpris og kaupir þetta og þá var ég og Matti búin að fara í Bunpris fyrr um dagin og biðja búðarmanninn um að láta strák hafa miðan, s.s. ef einhver kemur með dökk gleraugu og dökkt hár og kaupir bara 2 hvítlauksbrauð ætti hann að fá þennan miða.  Þetta tóks og Kiddi fær næsta miða: farðu nú í Kiwi(önnur matvöruverslun) og keyptu rjóma...Kiddi gerir það og fær annan miða þar og þar stendur: “Núna eru komin með 2 hvítlauksbrauð og rjóma...farðu núna útí Rema1000(þriðja matvöruversluninn) og keyptu 2 kalda bjóra(ekki pilsner)!  Og sendur mér svo sms” þetta fannst Kiddi ekki orðið sniðugt, enda hvorugt okkar sem drekkur...hann skildi ekkert en þessi elska hlýddi öllu sem miðarnir sögðu til um!  Svo um leið og við(ég, Helgi og Matti) fengum sms hlupum við heim og þeir skelltu sér bara úr buxunum og ég útbjó kokka hatta fyrir þá tvo.  Svo segi ég Kidda að koma heim: þegar Kiddi kemur heim tek ég á móti honum og spyr hvernig dagurinn var og að ég hefði ekkert vitað hvað ég átti að gefa honum svo ég hefði panntað tvo kokka til að elda fyrir okkur og bauð Kidda inn....OG ÞAR STÓÐU ÞESSI FRÁBÆRU KOKKAR SEM KIDDI FAGNAÐI ÓGURLEGA! 
 

En að sjálfsögðu gerðu þessir englakokkar ekki mikið í eldhúsinu svo ég eldaði, og notaði það sem Kiddi hefði keypt í herferð sinni um bæinn. 

Það eru jú flestir með facebook og hægt er að sjá þetta ALLT á video á síðunni hans Kidda.  

Mig langar að þakka Matta og Helga fyrir frábæra og eftirminnilega helgi! 
 

Ég ætla ekkert að setja inn neinar myndir, því þær eru allar á Facebook.  Ég er ekki alveg búin að gefast uppá blogginu enda vilja ættingjar fá að vita hvort maður sé á lífi eða hvort maður sé búin að lesa yfir sig. 
 

Nýjasta...ég saumaði mér rauðan EMAMI kjól í gær(gerði einn síðustu helgi líka(ekki fyrir mig)) og er byrjuð á lopapeysu sem ég ætla að klára áður en ég er búin með skólan...svo ég hef alla veganna 4 ár til stefnu!    Var að baka vöfflur áðan og hafði ís og allt gúmmelaðið með. 
 

Næstu helgi er þorrablót hjá Íslendingarfélaginu og hlökkum við mikið til. Helgina eftir það er skíðahelgi og ætlum við uppí Norefjell sem er víst svaka skíðasvæði og verðum við í bústað þar sem Íslendingarfélagið á. 


Meira nýtt: Ég var beðið um að vera í stjórn nemendafélagsins í skólanum og hef ég sagt já, svo ég verð innkaupastjóri og tek við því "embætti" 27.febrúar næstkomandi.   


Ég prufaði gönguskíði í fyrsta skipti síðasta mánudag og var það mjög gaman og fékk ég gefins gönguskíði sem vinkona mín átti því hún var að kaupa sér ný!  Þau eru náttúrulega alveg yndissleg - ég á svo góða vini!   

 

Þar til næst...(skal reyna vera duglegri að blogga)

Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Norsarar eru eins og fjölskylda okkar!Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Jamm og jæja - núna kemur önnur færsla!  

Já þannig er nú það, við Kiddi höfum nú fengið pakka frá Íslandi sem innhélt margt fallegt og flott frá bestu mömmu í heimi!  Við fengum nefnilega fullt af dóti frá USA, íslenskan lambahrygg, hangikjöt, flatkökur, Íslenskt nammi og MARGT MARGT fleira.  Ekkert er nú betra en íslenskt nammi og alltaf jafn spennandi þegar eitthvað er komið í nýjar umbúðir og svona.. ;)  

Ég fór í tvitugs afmæli til vinkonu minnar síðustu helgi og var ofsalega gaman, við fórum útað borða og þær lögðu allar í púkk og vildu bjóða mér matinn(kreppan, ef einhver var búin að gleyma henni) en ég harðneitaði öllu slíku og stalst bak við þær og borgaði nú matinn minn sjálf, enda alveg matur sem maður hefur efni á.  Eftir matinn fórum við í partí og svo uppí skóla á Bodega(barinn uppí skóla) á stelpukvöld þar sem boði var uppá fullt af skemmtilegum stelpudrykkjum sem ég hef ekki hugmynd hvað heita eða hvernig bragðast.  En það skemmtilegasta var að Á BARNUM DRUKKU ÍSLENDINGAR FRÍTT við erum jú ekki mörg uppí skóla, vorum 3 ár Bodega þá(erum 6 í öllum skólanum) og allir norsarar ánægðir með að við fengum frítt - heima hefði nú einhver mótmælt slíkri vitleysu.  

Þið sjáið undir þessu appelsínugula að það stendur: islendinger fri bar!  Gaman að þessu!  Svo sjáiði líka að stelpurnar fengu ódýrara því það var jú Stelpukvöld.  


Ég og Ida á ítalska staðnum sem Margretha hélt afmælið sitt.  


Thelma skvísa og afmælisbarnið Margretha

Núna er ofsalega fallegt hérna í Osló, lauf í öllum litum og aðeins farið að koma næturfrost.  Malin vinkona á svakalega flotta myndavél og er búin að taka nokkrar fallegar myndir af haustinu hérna hjá okkur, ég rændi tveimur til að leyfa ykkur að sjá hvað það er fallegt hérna:

Alveg ótrulegir litir!


Væri nú gaman að eiga hund og fara út að labba með hann í svona umhverfi - ekki það að ég geti ekki farið út að labba án hunds með Kidda, en allt er svo miklu skemmtilegra þegar maður hefur hund með ;)  En já hún Malin er alveg snillingur með myndavélina eins og þið sjáið.  

Síðasta sunnudag var okkur svo boðið í eins árs afmæli hjá henni Rakel Sigurðardóttir, mikið rosalega er hún orðin stór og falleg.  Hjá Sigga og Hörpu fengum við ofsalega gott að borða: heitan rétt, osta, svakalega góða köku og margt fleira!  Takk fyrir okkur!  

Skólin fór til Ás á fimmtudaginn síðasta og fóru um 230 manns með rútu.  Kvöldið byrjaði með fyrirpartí á Ás svo var sýnt revy/leikrit sem kanski svona sirka 3000 manns(er að tippa á töluna) voru á.  Það eru um 2000 mans sem stúdera þarna og við frá NVH(dýralæknaháskólanum) gjörsamlega týndumst þarna.  Eftir revyið var svo partí - stórir tónleikar í tveimur risasölum og svo voru 20 barir sem við gátum farið á og þetta var ALLT Í SÖMU BYGGINGUNNI!  JÁ þetta var svona eins og að vera í laugardagshöllinni sinnum 20!  

Me - Malin(þessi sem tók fallegu haust myndirnar) - Annelin að bíða eftir rútunni úti í kuldanum.  

Annelin sæta - strákar hún er á lausu ;)  og er algjört yndi þessi elska!  
Við vorum aðeins að leika okkur á klósettinu, leiddumst leikritið....

Jeg og Tuva og...enþá að leika á klósettinu, hehehe.


BH - Catrina - Annelin - Malin á svingbarnum.
Á svingbarnum var dansaður sving eins og gefur til kynna, þar var gestabók þar sem við skrifuðum eitthvað bull og gerðum svo að lokum smá norks-íslenska orðabók fyrir As ;)


Sjaíð kannski ekki á þetta + ég skrifa náttúrulega eins óskiljanlega og fyrir finnst(skil stundum ekki hvað ég er að glósa, skrifa svo illa). 
Nokkur dæmi sem við skrifuðum, hagnýt orð fyrir landbúnaðarháskólan: 

Ol - Bjór
Kurumpe - beljurass
grisefjos - svínabú 


Mín að tékka á skaufunni minni, var búið að hellirigna i As!  

Ég kom heim um 3 frá As og fór að sofa um 4 og vitið menn, ég vaknaði 7 til að fara í fyrirlestur sem var frá 8-14 og hélt mér vakandi allan tíman, svo kom ég heim lagði mig og um sjöleitið fórum við Kiddi uppí Guðrúnarstofu og hittum félaga FÍSN í fermingarveislu eins og þetta kvöld er kallað.  Þar koma allir með eitthvað sem þeir hafa bakað og svo er borðað og haft gaman!  Það gefur augaleið að þetta var auðvitað alltof mikill matur en þetta er alltaf jafn gaman og gaman að sjá hvað hverjir koma með!  Takk fyrir mig allir, við Kiddi áttum alveg frábært kvöld og borðuðum mikið!   

Hérna er ekki einu sinni allt komið á borðið, en mikið svakalega var þetta allt gott!  

Allir að háma í sig!  Áslaug - Hugrún - Ingi - Mr. Hottí(Kiddi ;)  Ekki það að Ingi sé ekki hott... hehe


Þóra - Sigga(frægasta kona Noregs um þessar myndir) - BH - Ingi örugglega að hugsa hvernig kreppan byrjaði
Sigga er nefnilega á forsíðu AFTENPOSTEN í dag með Obama og fleirum.  


Geir og Kiddi eflaust að ræða einhverja hagfræði jú eða viðskiptafræði.

En svo langar mig að láta alla vita að norðmenn eru þeir allra bestu vinir okkar íslendinga þessa daganna!  Þeir gera ekkert annað en að biðja aðstoð sína á hvaða vegu sem er, bjóða okkur að borða, lána pening eða gefa okkur eitthvað frítt!  Mig langar að biðja alla að lesa bloggið hennar Thelmu, ég hefði ekki getað skrifað þetta betur:
http://thelmadogg.bloggar.is/
Þarna bendir hún á hvað norðmenn eru góðir við okkur!  
Í síðustu viku var verið að selja miða á Fjösfest sem kosta um 400 norskar sem er um 7000kr íslenskar.  Fjösfest er eins og árshátíðin í skólanum, matur + áfengi eins og þú getur í þig látið + stórhljómsveit, s.s. eitthvað sem enginn í skólanum má missa af.  Ég var spurð hvort ég ætlaði og ég sagði bara að mér þætti þetta of dýrt, þá stakk einn uppá því í stjórninni að við íslendingar ættu nú bara á fá FRÍTT Á ÁRSHÁTÍÐINA og ég alveg tók undir það og mjólkaði allt sem ég átti til að sannfæra hann að það væri nú það eina rétta, við værun nú svo fátækar og fáar!  Heyrðu vitið menn - við fáum frítt á Árshátíðina!  Já, maður reddar sér í kreppunni krakkar mínir!  

í gær fórum við Kiddi á fund sem Steingrímur J. Sigfússon hélt hérna, þar talaði hann um orsök, framhald og fleira.  Þessi fundur var mjög fróðlegur og fínt að fá að heyra misjöfn sjónarmið á þessum málum.  

Við Kiddi höfum það annars bara gott, brjálað að gera hjá honum í skólanum og sama hjá mér, við höfum mat að borða og mjólk að drekka sem er nú fyrir öllu ;)  En mikið rosalega hlökkum við til að koma heim um jólin.  
Guðbjörg - Thelma - Bergey: Núna þessa daganna er ég eitthvað voðalega lítil og sef ávalt með Tígra við hlið mér og Kidda á hinni hliðinni ;)  Tígri fær líka að kúra með mér þegar ég horfa á TV ;)  

Núna er ég farin að sofa, en ef einhver á góða brauðuppskrift væri ég ofsalega glöð ef ég gæti fengið hana....langar svo svakalega að baka eitthvað gott brauð - er komin með bökunardelluna + pjónadelluna þegar tími gefst.  


Kv. BH 

maraþon, RÚV viðtal og svo margt fleira.Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Kæru landar og fleiri.  

Það er nú ekkert nýtt að frétta af okkur Kidda hérna úti, nema það að við getum ekki fengið peninganna okkar sem við eigum heima, jebb: NOREA eru búnir að loka á allar millfærslur til og frá Íslandi.  En við erum ágætlega stödd, eigum fullt af hveiti, sykri og pasta í skápunum - og úr því geturu bruggað ýmisslegt!  Við erum búin að lifa á banana brauði þessa viku, nei segi svona en erum búin að baka tvisvar sinnum bananabrauð í þessari viku, enda hráefnið ekki dýrt ;)

Í gær vorum við Kiddi í viðtali hjá RÚV, viðtal við fátæka námsmenn í Noregi.  Ég var mjög stuttorð og sorgleg, en sagði samt bara satt!  Við erum búin að ákveða að lifa á 500 NOR út þennan mánuð og þetta byrjaði 
á þriðjudaginn síðasta!  Við eigum jú fullt af mat í skápunum og í frysti sem við getum alveg bjargað okkur á.  Auk þess að við getum ekki millifært er gengið alveg óútreiknanlegt og VISA gengið er nú bara uppúr öllu valdi svo ekki getur maður reddað sér á VISA korinu.  Þið getið heyrt þetta viðtal á netinu, á www.ruv.is 
Norsararnir eru mjög mikið að hugsa um Ísland, alveg ótrúlegt - vinkonurnar að bjóðast til að lána mér pening, borga mat fyrir mig og fleira.  Ein er meira segja búin að tala við pabba sinn um að lána okkur pening til að borga leigu þar til við getum millifært, við erum nú ekki það illa stödd að við þurfum að fara fá lánað.  Við björgum okkur!  

Ég hugsa mikið til fyrrverandi samstarfsfélgra minna núna þessa daganna sem eru að vinna í Landsbankanum, örugglega svakalegt álag á þeim blessuðum.  

En ég hef trú á að þetta reddist allt, í nóvember verður allt komið á hreint og vonandi komið með plan fyrir beturum bætur og betri tíð - ein bjartsýn, en er það ekki eina sem dugar: vera bjartsýnn?

Það sem hefur verið að gerast síðustu vikur hjá okkur Kidda...

Í byrjun sept var stórt ball uppí skóla sem maður skellti sér auðvitað á, hérna eru nokkrar myndir af okkur skvísunum:  



Ég og Audhild skvísa.  Ingi þetta er þessi sem ég er oft að tala um ;) 

 
Þær eru svo sætar þessar elskur: Lína, Hanne, Annelin og Catrine


 Smá dansing in the street í gangi!  

En þetta var mjög skemmtilegt, þetta kvöld - dönsuðum eins eins og brjálæðingar til 6 um morguninn, sem er ganske mye miða við norðmenn...tek það fram að fyrirpartíinn hérna byrja yfirliett á bilinu 5 - 7 um daginn.  

Um það bil þegar skólinn var nýbyrjaður fórum við með nýnemanna uppí bústað lengst uppí fjalli, á leiðinni uppí fjall þurftu þau að gera hinu ýmsu hluti(ratleikur).  Þetta var sko enginn venjulegur ratleikur, þurftu að strippa og reyna fá sem lengstan kaðal úr fötunum sínum og norðmennirnir eru sko ekki spéhræddir, fóru bæði úr brjóstarhaldara og nærbuxum(reyndar bara ein úr nærbuxunum, en þó ein!).  Á annari stoppistöð þurftu þau að pissa eins langt og þau geta, og jebb - þetta gerðu allir, á okkar stoppistöð þurftu nýnemarnir að drekka bjór án þess að nota hendur á sem frumlegastan hátt. Hérna er ein mynd frá því: (þau fengu fleiri stig ef þau gáti fengið okkur Annelin til að hlægja)

Strákarnir greyin eru ekki svo margir svo þeir fengu oft að finna fyrir því.  

 
Ég og Annelin sáttar með nýnemanna.  Hérna var aðeins farið að kólna enda komið kvöld, svo maður skellti sér í íslenska lopann.  



þegar við komum á leiðarenda voru strákarnir í bekknum búnir að grilla fyrir okkur svín, mjög gott!  Sallat og kartöflusallat með og alles.  Hérna eru Trond, Magnús og Fredrik.  



Svo endaði kvöldið svona: uppá borðum í sem minnstum klæðum og helst með 2 öllara í hendi.   

Síðan var busakvöld, þar sem hver busi(nýnemi) var kallaður upp á svið og kynntur og gert svoldið grín af þeim, sumir voru baðaðir í dýrsblóði og sumur þurftu að dúsa í búri mestan part kvöldsins uppá sviði.


Helga ógurlega, hún er kandidat og var því böðull!  Myndi ekki vilja lenda í henni, úff....

Lína og ég þetta sama kvöld: busakvöldið.  Eftir busunina var svo partí á Bodega eins og alltaf.  


Thelma og Sigga skvísur.  Þarna sátum við og horfðum á kandidatanna hvelja greyið busanna.  

Ég, Saga og Thelma.  Saga er nýji Íslendingurinn í skólanum.  Alltaf gaman að bæta í hópinn!  Þarna er nýbúið að busa hana til hel****, samt brosir skvísan!  

Svo síðar í sept fórum við nokkrir Íslendingar á leikinn: ÍSLAND vs NOREG í fótboltanum.  Það var hisst á pöbb niður á Karl Johan og hitað upp, keypt sér trefill og svona.  Svo eins og fátækum námsmönnum er einum lagið tók maður auðvitað með sér nesti ;)  Brauð með kæfu og vatn, og jú saltfiska!  


Kiddi, Thelma og Beggi(kærastinn hennar Thelmu) á leið í lestina á leikinn.  


Í lestinni, þvílík læti og öskur, ísland söng, noregur söng og viseversa...


Áfram Ísland!  

Noregur vs Ísland


Svona endaði svo leikurinn.  Við hefðum átt að vinna!  

Upp í skóla var svo Hippi kvöld, Kvöld þar sem var frítt að borða, grill mat: ég meina alvöru grillmat: lambalæri, svínalundir og fleira.  Svo var quiz(spurningarkeppni), spurningar voru mest úr norskir sögu svo við Lína kunnum ekki svo mikið(hún er sænsk), svo við fundum uppá einhverju öðru að gera!  

David - ég - Lína.  sænskur - íslensk - sænsk.  


Jebb, fórum í grettukeppni!  Svona er maður þroskaður!  


Myndi samt segja að þær unnu: Annelin og Malin.  


Jebb svona eru tilvonandi dýralæknar skemmtilegir!  Boðið var uppá andlitsmálingu.  


Sólveig og Ulrik, hann varð sjúklega flottur þegar hann var tilbúin, minnti mig á hryllingsmyndina með trúðinum...man ekki hvað hún heitir.  

Síðan var kölluðum við til fundar uppí Guðrúnarstofu hjá FÍSN - félag íslenskra námsmanna í Osló og nágrenni.  Þar var kosinn ný stjórn og auðvitað bauð maður sig fram og vitið menn maður var kosinn formaður!  Og er planið að komu öllu í lag og sjá fyrir að þetta verði eins aktív félag og það getur verið!  Hérna eru nokkrar myndir frá fundinum, við spjölluðum/kusum/spiluðum og tókum vel á móti nýjum félögum.  
 
Kiddi alltaf umvafinn kvenfólki.  Drífa, KJÓ og Thelma(viðburðarstjóri FÍSN).   

Vignir, Ingi, Helgi(gjaldkeri) og Þóra(ritari). 

Núna þessa daganna í skólanum gerum við ekkert annað en að dissikera - krufningar alla daga, hjörtu/fætur/lungu og já ég gæti talið endalaust upp: Hérna erum við Lína og Annelin aðeins að fíflast með hjarta úr belju sem við áttum að opna og greina hvað hitt og þetta heitir: 

Já það er svoldið stærra en mitt hjarta!  Næstum stærri en hausinn á mér, svo þið vitið er hjartað okkar svipað stórt og hnefinn á okkur.

Já svona getur maður skemmt sér: Annelin, hefði nú verið drepfyndið að hún hefði misst það á sig, hefur nú oft gerst, ég náði að sprauta á mig líkamsvökva um daginn, var að skera upp hundinn okkar og skar í mjólkurkirtlanna og vitið menn, ég fékk gusu á mig, framan í mig!En maður lifir nú svoleiðis af.  

Síðustu viku erum við búin að vera með Hestebein(hesta fót) og áttum að læra mjög vel helstu sinar/æðar/vöðva og bein, í lok vikunnar þurfum við að saga af hófinn, til að sjá hvað var inní, það var mjög erfitt, áttum að saga nokkrar línur og svo rífa upp hófinn, þetta var auðvitað jobb fyrir mig - harðjaxlinn sjálfan, því þetta var svoldið klýgjulegt, sérstaklega þegar maður reif hófinn af, eins og maður væri að rífa af rosalega þykka nögl á sjálfum sér.  

Hérna er ég svo að hamast, maður svittnaði alveg!  En sammt allt gaman!  MAMMA SJÁÐU STÍGVÉLIN MÍN, geðveik pæja í NINE WEST stívélum.  


Allar geðveikt sætar, en ég eins og einhver slátrari!  

Eina helgina í sept pössuðum við Kiddi hund: hana Fibiee, algjör dúlla:

Fórum út að labba 2 sinnum á dag!  


Og hún kom með í búðina!  

Svo mál málanna Kristinn Jón Ólafsson hljóp heilt maraþon - Osló maraþon á 4:16!!!!! Og mín auðvitað stóð í 5 tíma að hvetja kallinn áfram, hjólaði stað frá stað þar sem ég vissi að hann ætti að hlaupa.  
Hann var gjörsamlega búin á því eftir hlaupið: krampar, óglatt og grenjandi, þegar hann kom í mark!  
Nokrar myndir: 

Hress fyrir hlaupið - jebb Glitnirs hlaupið, helgina fyrir gjaldþrot.  

Flott veður í Osló þennan dag - og já ennþá hress fyrir hlaup!


Osló ráðhúsið - jebb hress...þetta var fyrir hlaup!


Stuðningsmaður nr. 1 og Hr. Hressi!
Ég var að deyja úr stressi þarna, næstum grenjandi - maðurinn er svo þrjósur að hann myndir hlaupa þó hann myndi missa aðra hendina!

Hérna er hann hálfnaður...aðeins farin að þreytast.

Hérna er gauði að koma í mark, grátandi úr eymslum!  


Svona leit greyið svo út eftir 42,2km!!!!!  Og ég þurfti svo að bera hann heim, því ekki eigum við bíl til að keyra bara heim, neibb gjöra svo vel og hjóla heim!

Jæja, núna er ég orðin of sein í partí!  Farin í sturtu og svo partí....meiri tímann sem þetta blogg tekur, sérstaklega þegar maður hefur ekki bloggað svona lengi.  
Bið að heilsa heim!  

Kv. Bergþóra 

Long time..no blogg!Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Hæ!

Núna erum við Kiddi komin og farinn frá Íslandi. Við gerðum helling í sumar! Ætla ekki alveg að telja allt upp...en svona eitt og annað.

Við fórum í fullt af partíum, matarboðum og margt margt fleira.

Já og..ég klippti af mér hárið. Við Vala fórum saman á Unique(held það sé skrifað svona) þar sem við tókum lokkanna af...Þetta var mjög gaman, svoldið stress áður en svo var ekkert aftur snúðið. Vala settist nú bara í stólinn og hún byrjaði að klippa áður en hún fékk að segja hvernig hún vildi það og ble...og ÞÁ var ekkert snúið til baka. Ég vildi fá hárið í tagl til að gefa og tók hún þá smá tíma í að setja faxið í teyjur, svo þegar hún byrjar að klippa er alveg dauðaþögn á stofunni! Svo segir hún, Jegvan viltu kom með skærin þín, þín eru stærri og þá kemur hann og segir með svaka show: "you know what they say about big scissors" og klippti faxið af - ég hélt hann ætlaði aldrei að verða búin enda orðið hálf vandræðalegt að sitja þarna meðan allir horfa á skelfingarsvipinn á mér, hehehe! Svo fór naflastrengurinn loksins og allir klöppuðu! Bara eins og í lélegri USA mynd, heheh! Ég er mjög sátt með stutta hárið, er reyndar enn að nota alltof mikið shampoo en það hlítur að fara að venjast. Faxið sem er mjög langt og þungt ætla ég að gefa til góðgeðra starfsemi, mjög líklega til krabbameinssjúkra sem hafa misst hárið.

Þjóðhátið var æðissleg!!! Svaka stuð með stelpunum mínum, hefði samt verið fullkomið hefði Vala mín og Birkir komið á sunnudeginum en maður getur jú ekki ráðið öllu(veðrinu).

Skólinn er byrjaður á fullu! Ég setti inn myndir hérna til hliðar frá sumrinu, þó bara brotar brot af því sem ég hef sett á Facebook. Ég er farin að setja mun fleiri myndir á Facebook en hérna inn, ástæðan: mun auðveldara - auk þess fær maður comment á myndirnar þar ;)

Er bloggið kanski bara dautt? Og facebook komið í staðinn. Ég get nú samt ekki gefið upp bloggið, familian heima er jú ekki með facebook...

Jæja skoðið myndirnar sem ég setti hérna til hliðar sem heita: Sumar 08

Kveðja,
Bergþóra

Ísland hér kem ég!!!Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Já þá er próftörnin búin. 
Ég er alveg búin á því, sat 10-16 tíma á dag uppá lesesal síðasta mánuðinn.  Horfði ekki á tv einu sinni, jú í 30 mín í þar síðustu viku ;)

Jæja ég ætla ekkert að vera skrifa mikið, en það er ýmisslegt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, ég er búin að setja inn myndir hérna til hliðar, endilega skoðið þær og commentið hérna fyrir neðan.  


Þessi var tekin í gærkvöldi, á leiðinni á prófalokadjamm.  

Ég kem heim á sunnudagskvöldið!  Heim = Ísland

Sjáumst síðar gott fólk.  

Klem
Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Sólarblogg!Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Jæja núna kemur blogg!  

 

Síðustu daga hefur verið spánar veður hérna hjá okkur Kidda.  Glampandi sól, logn og hiti, öll kaffihús full og allir að borða ís.  Þetta finnst okkur æðislegt, geta setið útá svölum og sólað okkur, já eða lesið í lærdómsbókunum.  

 

Það er svo langt síðan ég bloggaði að ég veit varla hvar á að byrja.  Jú haldiði ekki að kellan hafi ekki keppt í fótbolta.  Þetta var keppni í skólanum á milli allra bekkjanna.  Stelpur á móti stelpum og strákar á móti strákum.  Ég spilaði vörn næstum allan tíman en svo ákvað ég að prufa að spila miðju og hvað haldiði kellan skoraði mark, fyrsta markið okkar í 3 leikjum og eitt af tvemur sem voru skoruð í allri keppninni hja okkur, spurning hvort maður sé að spila vitlausa stöðu.  Ég spilaði nú alltaf vörn hérna í gamla daga.... En við lentum nú samt í örðu sæti af 4.  Thelma kellinginn slasaðist, en hún er svo mikill nagli að hún harkaði þetta af sér...eftir nokkra daga.  :)

Okkar bekkur klædddi sig í svona líka fína búninga, við vorum einu sem vorum í búningum, hehehhe: 

 


 

 

 

Ég og Anna, geðveikt ógurlegar!

 

 

Þessi sem er hangandi með grímuna skoraði svo hitt markið okkar...og hún spilaði alla leikina með grímuna á sér, hehehhe.  

 

Það sem er framundan hjá bekknum okkar er heljarinnar leikrit og ég er í smink kruppunni og hérna er hópurinn, þetta er mynd sem kemur í bæklinginn, erum við ekki miklar pæjur. hehehhe.

 

 

Kiddi er að fara að keppa í fótbolta á morgun verður gaman að sjá hvernig sá leikur fer.  Hann fer alltaf 2 sinnum á æfingu í viku.  

 

U...í gærkvöldi bauð ég Annelin í djúsí samloku og svo fórum við í partí til Mæju og enduðum við svo niður í bæ.  Kiddi fór og hitti Kobba, Sollu, Inga og Hugrúnu og fóru þau á útitónleika sem voru víst algjörir stórtónleikar.. Fóru svo í keilu og skemmtu sér vel.  

Við höfum ekki verið nógu dugleg að mynda svo þið afsakið það....

 

Ég ætla að setja inn krufingarmyndir hér til hliðar...og enn og aftur ekki skoða þetta ef þið eruð viðkvæm.  

en já talandi um krufingar, við fengum að kryfja hunda heila um daginn og var það mjög merkilegt, heilinn er alveg pínu lítill miðað við það sem maður var búin að búast við.  

 

Við fengum svo að kryfja hund í síðustu viku, við erum 5 í hóp sem fengum hund og verðum við með hann til sumars.  Við tökum svona að meðaltali 3 tíma á viku í að kryfja hann og skoða.  Í síðustu viku fláðum við hann að hálfu og skoðuðum við vöðva.  Svo endar tíminn á því að við þurfum að leggja feldinn aftur yfir allt og setja hann í plast poka og inn í kæli...skemmtilegt.  Mér finnst þetta ferlega skemmtilegt, hélt ég yrði einmitt þessi týpa sem fyndist þetta ógeðslegt og væri hálf hrædd við að skera og svoleiðis en nei nei nei, ég er mesta hörkutólið í hópnum.   Fékk að heyra það að ég væri nú bara klárlega best í þessu og ætti vel heima hér, hehehhe!  Frekar skrítið, mér fannst ekkert mál að skera hundinn, en fyrst þegar ég sá allar kisurnar hérna í haust þá var ég svoldið stressuð fyrst að skera.  En jæja, nóg um dýralækna mál....  (ég er ánægð með ykkur ef þið nennið að lesa blaðrið í mér).  

 

Það sem stóð í síðasta blogg eru engar ýkjur, ég vakna 6 og fer í skólan þegar ég er tilbúin og kem heim svona um sjö til átta og borða og fer að sofa um leið og það dimmir sem er svona hálf tíu til tíu.  Á fimmtudaginn fór ég nú að sofa þó svo að það var glampandi sól enn..og klukkan var korter i tíu.   Ég hef ALDREI á æfinni lært svona mikið eins og núna!  Ég er örugglega búin að lesa meira núna en allan menntaskólan og grunnskólan til samans!  

 

út í annað....langar einhverjum að senda okkur Kidda bragðaref frá vesturbænum með marsi, þristum og trompi?  Hérna í Noregi fæst ekki bragðarrefur, nei bara ís í vél með dýfu...þeir eru nú alveg 5 árum á eftir okkur í öllu...alla veganna það.  

Væri líka gaman að fá malt, cheerios og margt margt fleira sem maður kunni ekki að meta þegar maður var heima.  Við Kiddi værum líka alveg til í KFC, það er ekki slíkt hérna enda eru allir í hollustunni hérna.   Jæja þetta eru bara svona pælingar, hehhehe.  Nei nei, við komum heim í sumar og þá verður allt þetta íslenska svo æðislega gott og frábært, get hreinlega ekki beðið eftir að koma heim.

 

Ég er með eina mynd af mér og Malin í prófpartýinum eftir síðasta próf, sem ég by the way stóðst!  Það var 30% fall og er ég bara nokkuð ánægð.  

 Hún er alveg sjúk í kolkrabba og hún perlaði sér hálsfesti með kolkrabba...svo er hún nýbúin að láta sauma á hettuna á einni peysunni sinni mynd af kolkrabba.  Jább við höfum öll misjöfn áhugamál.  

 

Heyrðu nóg blaður í bili, þarf að fara lesa smá og svo sofa :)  

Kveðjur frá sólinni í Osló!

Bergþóra og Kiddi.

 

 

 

 

Pistill frá tilraunadýrinu (öðru nafni Kiddi) í Norge - svona svo þið áttið ykkur á því hvað það er mikið að gera hjá sumumBergþóra Hallbjörnsdóttir

Eftir smá mail-samtal við Völu vinkonu hennar Bergþóru í dag bað hún mig um að koma kveðju til skila 
til elsku Bergþóru minnar eða eins og hún orðaði það; Bið að heilsa stranger-num!

Ég áttaði mig held ég nokkuð fljótt á því um hvaða stranger hún var að tala, þar sem ég hef ekki séð
hana mikið undanfarna daga sjálfur og svaraði því tilbaka:

Ef stranger-inn sem þú talar um... er þessi sem sefur hliðina á mér og talar upp úr svefni um að skera
í HEILANN á fólki, vaknar svo kl. 6 á morgnana í miklum flýti, kemur heim í kvöldmat kl. 20 við það
að hrynja niður, fer svo á netið í Air tölvunni (þykist vera eitthvað voða töff) til þess að skoða Forever 21
í klukkutíma, "PEXAR" (ath. þetta þýðir ekki að rífast samkvæmt orðabók stranger) við mömmu sína
í korter og horfir á kennslumyndbönd um skurðaðgerðir á YouTube í hálftíma með HRYLLINGSTÓNLIST
undir, fer að lokum "ALEIN" upp í rúm að sofa þegar það fer að dimma alveg búin á því
(ath. samt er þessi vera alltaf jafn FALLEG). Þá skal ég reyna að gera mitt allra allra besta til þess
að koma skilaboðum þínum áleiðis í einhverjum af þessum athöfnum hennar.

E.s. Fór að velta því svo fyrir mér hvenær ég ætti að koma skilaboðum þínum áleiðis:
Nótt - mjög hæpið þar sem stranger gæti tekið upp á því að grípa í SKURÐHNÍFINN og byrjað á því
að skera upp heilann minn. Aha... ég var að fatta það núna af hverju ég er með ÖR við kviðarholið.
Morgun - allt í PANIK, stranger þarf að mæta á "réttum tíma" í skólann. ATH. það nægir ekki að
vera mætt hálftíma áður en tíminn byrjar heldur þarf líka að vera með þeim fimm fyrstu á svæðið.
Ég ætla að leita ráðlegginga hjá Dr. Pétri og spyrja hann hvort þetta séu einkenni af því að
LESA YFIR SIG?
Dagur - hvað er það?
Kvöld - ég er búinn að komast að því hvert VIÐHALDIÐ er... stranger er að hruni komin en samt vill
hún alltaf líta vel út og er því mjög upptekin að skoða föt með Mr. Air (&%$#!). Það er heldur ekki
séns að koma einhverju að þegar hún "ræðir" við mömmu sína og er að horfa á SUBBULEGAR aðgerðir
með Mr. YouTube... en alltaf fær Mr. Air að vera með??? Eina sem ég fæ tilbaka ef það heyrist
minnsta múkk í mér... USSSSSSSS!

Það sem mér dettur í hug til þess að koma skilaboðum þínum áleiðis og að ég haldi þeim LÍFFÆRUM
sem eftir eru... er að þú sendir sjálf mail/msn á stranger. Ef ég geri það, þá greinir Mr. Air að ég sé
IP-kk og maður veit aldrei hvað svona TÆKNIUNDUR og AMATEUR (ath. stranger er bara á fyrsta ári)
skurðlæknir tækju uppá í sameiningu þegar ég fengi mér KRÍU einn daginn, tala nú ekki um það ef
Mr. YouTube fengi að vera með.

Hilsen,
ABBÓ TILRAUNADÝR sem mætti halda að hefði ekkert betra að gera en að senda mail :-)

Páskar liðnir - Anatomy byrjuðBergþóra Hallbjörnsdóttir

ja gott fólk.

Ég er búin að vera í basli í marga daga að komast á netið þannig að þið afsakið bloggleysið.

Páskarnir okkar voru æðislegir, þó svo við vorum hérna í útlandinu. Við fengum páskaegg sent frá að heiman svo við höfðum það gott.

Við fórum á skíði í Tryvann sem var æðislegt! Fallegt veður og já bara allt mjög vel heppnað, vorum með nesti með okkur og heitt kakó.
Við erum bara nokkuð klár á skíðunum þó ég segi sjálf frá, fórum meira segja að stökkva á stökkpöllum og læti!

Nokkrar myndir frá skíðum:

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket



Ef þið horfið vel, þá sjáiði Kidda á flugi, hann er að stökkva á stökkpallinum ;)


Hann Bazir var hjá okkur í 5 daga og var hann nú meiri prakkarinn, hann óð uppá allt og klóraði allt, svo tók hann koddann minn þegar ég svaf, - hann svaf á honum ekki ég!
Photobucket

Bazir fékk að leika við páskaungann.
Photobucket


Ég sakna hans nú svoldið og Kiddi líka, það var yndislegt að hafa dýr hérna á heimilinu, samt ekkert eins og Dúlla.


Kiddi er á fullu í fótboltanum og fór í fótboltapartí síðasta föstudag eftir prófið sitt sem hann var í. Eins og oft hérna í NO þá var quizkvöld, mjög vinsælt hérna!
Á laugardagskvöldið fór ég með bekknum mínum í prófpartí, ég var í prófi á föstudaginn sem tók 6 1/2 tíma! Já, maður fær alveg sár á rassinn á þessu! En það gekk ágætlega held ég, en svo veit maður aldrei hversu strangir kennararnir eru á hlutunum.

(það vantar mynd.... )
Allstaðar er dansað!!! AND I LOVE IT! Hérna kunna allir að dansa og það er dansað allstaðar hvenær sem er!

Núna er ég byrjuð í fagi sem mér líkar mjög vel. Anatomy-Fysiology! Núna er ég að læra hvað allt heitir á ensku og latínu - allar æðarnar, taugarnar, vöðvarnir, beinin og fleira hjá beljum, kindum, hundum, hestum, köttum og fleira. Á mánudaginn fáum við hundaheila til að skoða og kryfja.


jæja nóg í bili, Kiddi sæti er búin að elda fyrir mig!

BH

E.s. ef einhver kann að setja inn myndir á bloggar með mac væri voðalega gott að fá smá hjálp því ég er ekki að nenna að gera þetta svona eins og ég gerði þessar. Ég hef alltaf getað copy pastað myndir frá Snapfish en það virkar ekki í maccaranum mínum ;(
Hvernig fer fólk að?

Páskar + prófalestur + passa kisuBergþóra Hallbjörnsdóttir

Hæ hæ.  Ég hef ekkert bloggað lengi en á fullt af myndum frá hinu og þessu....ætla bara að hafa smá myndablogg:


Nokkrar stelpur í bekknum komum saman og elduðum Músaka...rosalega gott...var voðalegt kósýkvöld

Eftir kvöldmatinn fór ég svo og hitti FÍSN félaga og við spiluðum Actionary + Trivial ...svaka fjör...eins og ávallt hjá okkur Kidda þegar við tökum í spil. 
nokkrar myndir þaðan.

Thelma með svaka hársveiflu þarna.

Kiddi töffari...fúll því hann var að tapa...hehhe


Stelpuliðið rústaði báðum keppnunum. Hérna er "dýralæknasófinn"  Við erum eins og er einu Íslendingarnir sem erum í skólanum....jebb það eru bara 3 íslendingar!!!  (+ tvær sem eru heima og eru á 5 ári sem eru að klára). 


Mér leiðist Trivial ( ekki nógu mikið action) svo ég tók myndir ;)


En fallegt! 


Félagarnir Kobbi og Kiddi.


Hehhehe, mongólítar.

ÉG prjónaði mér eyrnaband um daginn...á meðan við Kiddi horfðum á eina mynd

Svart + hlýtt + einfalt...

Núna síðasta þriðjudag var svo partý í skólanum. Sjokk - Bodega...klappstýrurnar í skólanum voru með show og svona.  Fyrir það var fyrirpartý og ég hjólaði þangað eins og ég geri allt...en vitið menn það kom GRENJANDI RIGNING + ÞRUMUR + ELDINGAR Á LEIÐINNI.... Ég sem var búin að gera mig svo fína varð sko rennandi blaut...ég var með tösku á mér og allt sem var í henni varð bara eins og ég hefði hennt mér í sundlaug...en þetta reddaðist nú.  Kiddi var örugglega meira stressaður að vera á 7 hæð og horfa á eldingarnar vitandi að ég var hjólandi á þessum tíma. ´

hérna eru myndir frá kvöldinu...
Audhil+Malin+Guðrún+Annelin+Mæja+Catrína...Þessi nöfn eru ekki skrifðu svona en ég skrifa það bara eins og ég kalla þær...þetta er partur af vinahópnum.

Annelin og moi. 

Margrét og Malin

Hárið mitt aðeins farið að þorna þarna, hehehhe

Showið

Þarna erum við á Bodega..svaka fjör

Íslensku tími...ég var helllengi að kenna þessum 3 íslensku...þeim langar öllum að læra allt á íslensku.....en þau halda að ef maður bætir bara -UR við norskuna þá séu þau að tala ÍSLENSKU.hehehhe

Jæja við Kiddi gerum ekkert annað en að læra þessa daganna....jú og sitja útá svölum í sólbaði... eða svona næstum því sólbaði erum ekki alveg á bikini en það er samt heitt í sólinni. 

Á miðvikudaginn erum við að fara passa kött fyrir stelpu í skólanum, hann heitir Bazir og er voðalega sætur:
Flottur...

En auðvitað er Dúlla fallegasti köttur í öllum heiminum.

Jæja þar til næst, (ef það verður ekki fyrir páska þá segi ég bara Gleðilega páska...)

Kveðja,
Bergþóra


Ég setti inn link á myndirnar frá matarboðinu og FISN spilakvöldinu og er það númer: n undir myndir hja mér.

Klukkan

Auglýsing

Könnun

Skartgripir...

Gullkorn

Guð gefi mér æðruleysi, til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli.

Nýjast á HumorPix

Funny Images, The Nutcracker Funny Images, Canadian girls Funny Images, Miku Donalds Funny Images, Tom Cruise Wins Funny Images, Yoga pants at the gym Funny Images, Your friend needs software upgrades...

Ég - I - Moi - Jeg - Ich....

  • Nafn: Bergþóra Hallbjörnsdóttir
  • Heimilisfang: Pilestredet Park 45, 0176 Osló, Noregur